Lizzie*Kate SAL
Efnisorð: Christmas, happy dance, Lizzie*Kate, ornament, SAL
Efnisorð: Christmas, happy dance, Lizzie*Kate, ornament, SAL
Ain't he cute? Sorry about the overexposure. As it's dark for most of the day this time of year natural light is hard to come by..
This bookmark I got from my sister on Christmas. I am already using it and I love it. Isn't my sister sweet to me :-) I just wanted to brag about it :-)Efnisorð: Christmas, happy dance, other
As you can see it's not quite done, I've got a little backstitching to do and there is the matter of the wording on top... I'm not sure I'll be stitching that. I think I may leave the santa as he is.
Isn't it gorgeous? I love it. But Rósa Tom sent me another ornament made of felt. That was so cute too.
Sorry how blurry this one is. It was fine on the screen on the camera but on the computer screen, not so fine..


Ég ákvað að slá tvær flugur í einu höggi og taka þátt í 24hr Challenge á Friends Gather BB og reyna að sauma jólaskraut á þeim tíma og þannig taka líka þátt í Ornaments with KarenV. Ég byrjaði á blessuðum kisanum í gær og kláraði núna í hádeginu. Það var mikið saumastuð hérna í gær, enda sat ég og saumaði frá því rúmlega eitt eftir hádegi til ca. miðnættis. Reyndar voru þónokkrar pásur þarna, sérstaklega til að skreppa í búð og borða og auðvitað klósettferðir.. Þær eru nauðsynlegar :-DEfnisorð: Christmas, happy dance, ornament

Efnisorð: Christmas
frá Water's Edge. Ég fékk svaka sendingu í póstinum í gær en ég hafði pantað fullt af garni sem mig vantaði (eða ekki, fer eftir hvernig maður lítur á málið) til að sauma jólaskrautin sem ég hef ákveðið sauma á næsta ári. Alla vegana þá kom garnið í þessa sætu mynd og ég átti flott handlitað 28ct Lugana efni frá, hverjum öðrum, Silkweaver sem mér fannst eins og sniðið fyrir þessa mynd. Garnið er frá Weeks Dye Works sem ég held að ég hafi ekki prufað áður (flottir litir!) og perlurnar eru Mill Hill Magnifica. Engillinn á toppnum er bara frá mér en munstrið kallaði á stjörnu treasure frá Mill Hill sem ég átti ekki. Mér fannst engillinn svo sætur að ég ákvað að nota hann í staðinn.Efnisorð: Christmas

Efnisorð: Christmas
Ást mín á jólaskrauti sem Sue Hillis hefur hannað kemur berlega í ljós í þessu bloggi :-) Jólatréð frá því um daginn var hennar hönnun sem og þetta sæta nammistafapúðaskraut.. Ég gæti skírt þetta lengra orði en ég held að þetta dugi.. Það tók soldið langan tíma að sauma þetta skraut en ég byrjaði í þarseinustu viku og kláraði bara núna áðan. Ég er samt hrifin af því og hlakka mikið til að sjá það í púðaformi. Ég áætla að ég noti þetta efni á myndinni við gerð púðans.. Snjókallar sko!Efnisorð: Christmas, happy dance, ornament
Linda úr Allt í Kross var svo æðisleg að kaupa fyrir mig Bugle perlur og gylltar perlur svo ég gæti sett kertin á blessað jólatréð mitt :-) Ég fæ henni ekki þakkað nógsamlega :-) Þessar perlur eru nefnilega ekki til hér á Hornafirði.Efnisorð: Christmas, happy dance, ornament
Ég var búin að ákveða að sauma nokkur jólaskraut og þetta hérna var eitt af þeim. Þetta er úr Just Cross Stitch jólaskrautsblaðinu frá 2003 og hannað af Sue Hillis. Það er saumað á 28ct Dusty Miller Permin Linen með Silk Mori garni. Mikið rosalega er það mikill munaður að sauma með silkigarni. Svo er þetta bara alveg æðislegt munstur. Það eiga að vera perlur líka, en þær eiga að sýna jólaskrautið á trénu sjálfu. Þetta á eftir að koma rosalega vel út þegar þær eru komnar, en mér finnst nú tréð rosalega flott þó skrautið sé ekki komið :-)
Þetta er December Flip It eftir Lizzie*Kate en það var Desember SAL í grúppunni. Ég er voðalega ánægð með hvernig þetta kemur út en ég notaði flotta græna garnið sem hún Danielle gaf mér um daginn :-) Mér finnst jólatréð á myndinni koma alveg æðislega vel út með þessum lit. Ég notaði líka einn lit frá Gentle Arts í piparkökukallinum. Svo átti ég gulan Kreinik þráð sem ég nýtti aðeins til að láta stjörnuna glitra og annan rauðan glitþráð í jólaskrautið á jólatrénu. Svo var þetta allt saumað á glitrandi aida java þannig að þetta er mikil glansmynd :-D Svo fer þessi mynd á jólakort handa vinkonu minni.Efnisorð: Christmas
Ég sagði frá því fyrir tæpri viku að ég hefði sent frá mér jólaskraut í jólaskrautskiptum sem ég tók þátt í. Jæja, Isabelle er búin að fá jólaskrautið sitt og er hæstánægð með það :-) Ég er svo fegin að henni þótti það fallegt því ég var á tímabili soldið farin að efast um valið mitt. En í emailinu sem hún sendi sagðist hún vera ofsalega hrifin af því og ég trúi því :-)
Ég er byrjuð á þessu Mill Hill kitti sem heitir Holiday Wreath Garden Gate og ætla að nota jólalaugardagana í það. Reyndar ætla ég að klára það fyrir jól þannig að ég gæti gripið í það á öðrum dögum líka :-)
Ég var alveg harðákveðin í að klára þessa blessuðu mynd í dag. Og það tókst. Reyndar eftir miðnætti en það er aukaatriði ;-)Efnisorð: Christmas, happy dance, ornament
Núna er ég reyndar að stinga fyrstu myndina í Margaret Sherry SAL-inu. Og þó ég hafi ekki verið að sauma í jólakisunni í gær þá saumaði ég samt í jólamynd. Ég gerði Lickle Ted sem var með seinasta eintaki af The World of Cross Stitching. Hann er voðalega sætur :-)Efnisorð: Christmas, freebies, happy dance
Ég er ekkert smá happí, ég var nefnilega að fá pakkann minn úr þessum skiptum sem ég sagði ykkur frá. Alla vegana, ég tók mynd af herlegheitunum. Það er sem sagt þessi mynd, ég er ekkert smá ánægð með bæklinginn sem ég fékk. Það eru fullt af æðislegum jólasveinamunstrum sem ég á pottþétt eftir að sauma, svo er jólasokkurinn með bangsanum svo sætur. Hann er saumaður í plast, ég hef ekki prufað það enn, en ég hef gert í pappír og það getur nú varla verið mikið öðruvísi? Jæja, ég kemst að því fyrr en varir, eftir að ég klára Tatty Teddy þá byrja ég á þessu kitti.