Á þriðjudaginn fékk ég pakka frá
Silkweaver sem ég var búin að bíða eftir í rúma 2 mánuði. Það er nú ekki það sem ég ætlaði að blogga um, en í pakkanum var Celebration bag með þrem efnum og ég vissi ekkert hvað ég væri að fá, þetta var eitthvað tilboð hjá þeim. Efnin voru þessi, 32ct
Belfast Linen, 32ct
Lugana og 28ct
Opalescent Lugana (sem er uppáhaldið :-) ) . Ásamt þessum efnum hafði ég pantað 2 Summer Fun pakka, annan með 14ct Aida (fallega bleikt), GAST vínrauðu garni úr limited edition flokknum og Frosted Heather Mauve perlur frá
Mill Hill. Hinn Summer Fun pakkinn er með 28ct Cashel Linen Natural, Stranded by the Sea garni í grænum tónum og Dark Basil perlur frá Mill Hill. Báðar pakkningarnar voru keyptar með það í huga að sauma út Tree Ornaments frá
M Designs í efnin með því garni sem fylgdi með. Og ég er búin með fyrri pakkninguna (þessa bleiku auðvitað :-) ).
Þetta er sem sagt Love Ornament Tree og ég er rosalega ánægð með gripinn og hvernig garnið kemur út. Ég sé fram á að gera einskonar klukkustreng úr þessu. Svona mini klukkustreng. Það átti að vera hjarta efst en ég átti það ekki en ég átti stjörnuna og fannst hún koma svo vel út með þessu að ég ætla bara að leyfa henni að vera þarna :-)
UFO-stykkið mitt fékk enga athygli á þriðjudaginn var og ég býst ekki við að hafa tíma í hana fyrr en á næsta þriðjudag bara. Ég þarf að taka íbúðina í gegn því á mánudag fer ég til Seyðisfjarðar að ná í móður mína. Svo er vinna um helgina þannig að ég næ ekki að gera mikið í jólaverkefninu sem verður sennilegast jólakisurnar. Þær ætla ég að gera í plast og setja bara filt eða felt eða hvað það nú heitir á bakið. Það verður örugglega flott.